Gesta blogger #2
Sveinninn er ekki kominn á stjá ..... sko jólasveinninn en hitt er annað mál að Sveinn I er alltaf á stjái og eins gott að vara sig á honum og hans framkvæmdum. Engin leið að átta sig á því hverju hann tekur upp á næst. Reynir svo í gríð og erg að skila sér bak við misgáfulegar ástæður athafna sinnna. Í því samhenig er vert að hvetja fólk til að taka höndum saman og ætleiða jafnvel Ævar og félaga í örvæntingafullri leit þeirra að hamingjunni.........
En þar sem ég hef hvorki vit á mannfræði né dýrafræði og hvað þá miklar hugmyndir um Skota þá held ég að best sé að halda sig fjarri þeim slóðum. Hins vegar hef ég áhyggjur af því hvað blessaðir mannfræðingarnir planta sér mjög skipulega inn í líf mitt og það er ekki þverfótað fyrir þessar tegund sem erfitt hefur verið að skilgreina í þaula. Tegundinn virðist eiga nokkuð margt sameiginlegt. Það ber hæst einlægur tónlistaráhugi sem verður að viðurkennast að ég hef notið góðs á mörgum sviðum.
Þar sem jólin eru á næsta leiti og Ísland og jól er alltaf e-ð svo ýkt langar mig að koma með smá innlegg ....
Áhyggjur mínar í dag beinast nefninlega að ungri dömu sem er óþægilega lík móður sinni á allmörgum sviðum. Helstu áhyggju efni komandi jóla hjá ungu snótinni er að þurfa að fara i jólakjól..... já rétt lesið.... jólakjólinn hefur valdið þessar snót miklum áhyggjum og svefnleysi og í sannleika sagt hlakkar hana bara engan vegin til jólanna þar sem þá þarf hún að fara í jólakjól. Gert hefur verið heiðursmannasamkomulag um að það verði farið í leiðangur í leit að e-r sem gæti talist til sæmilegs jólafatnaðar. Dömunni var létt.... jólin og jólasveinarnir mega koma. En samt eru áhyggjur dömunnar varðandi jólin fleiri, því miður. Áhyggjurnar beinast nefninlega jafnframt að því hvað eigi að gera ef barbie eða prinsessudót leynist í jólapakkanum...... hummmm hvað skal þá til bragðs taka. Erfitt líf á jólunum.... segi ekki meir. Útskýringarnar eru einfaldar.... ég elska ekki barbie, bleikt eða prinsessudót..... Svartur er uppáhaldsliturinn og fótbolti er skemmtilegastur..... og jú skíði líka. Hana langar meira en allt í svört skíði og svarta skíðaskó..... Þau mega ekki vera með e-m myndum, skilurðu það mamma?
Það væri stundum ágætt ef maður sjálfur, kominn til vits og ára, vissi hvað maður vildi.... Held að ég færi valdið yfir til dömunnar, allt svo einfalt á þeim bænum.